Kæru félagar.
Við stefnum á að halda alvöru sveitaball í reiðhöllinni föstudagskvöldið 24.júlí, okkar félagi til fjáröflunar.
þar verður sjálfboðavinna nauðsyn,og allar hendur vel þegnar.
Ég er að safna á lista nöfnum og símanúmerum fólks sem er til í að leggja eitthvað af mörkum í kringum þennan viðburð, svo ég hvet þig félagsmaður góður að hafa samband og koma að þessu með okkur í stjórn Grana.
margar hendur vinna létt verk og til mikils er að vinna.
símanúmerið mitt er 8663060
netfang liljahrund@live.com
það má líka fara uppí höll og bæta sér á lista sem hangir þar uppá vegg inná kaffistofu og skrifa nafn og síma.