Á ekki að skella sér á mót?

Stórmót Þjálfa verður haldið á Einarsstöðum helgina 8-9. ágúst næstkomandi.
Keppt verður í :
A-flokki, B-flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki, tölti, öldungaflokki og skeiði.
Miðaverð er 3000 kr. en frítt fyrir þá sem eru yngri en 14 ára og þá sem eru 67 ára og eldri.
Upplýsingar um skráningu og dagskrá koma síðar.
Nefndin

2015-12-19T19:43:27+00:00 29 júlí , 2015|Fréttir, Mót og úrslit|0 Comments

About the Author: