Hugleiðingar formanns stjórnar Grána ehf

Þegar ársreikningur stjórnar Grána ehf lá fyrir í vor og ný stjórn tók við biðu hennar krefjandi verkefni.
Við þurftum að finna leiðir til að greiða af láni uppá 1,7 milljónir og fjárafla fyrir skuldum.
Félagið sjálft ætti fyrir þeim ef við myndum selja reiðhöllina,enn það viljum við auðvitað alls ekki,verkefnið er að laga reksturinn og passa að hann sé ekki fjársveltur.
Grani fjáraflaði og lánaði Grána ehf  afraksturinn svo að hann stendur ekki illa í dag.
Þó eru blikur á lofti því betur má ef duga skal til framtíðar og er yfirlýst stefna Grána ehf að vera áfram öflugur í að vera sjálfbær að því marki sem hægt er og að gera rekstrarsamning við Norðurþing sem dekkar mismun á innkomu og þörf í rekstur svo hann sé ekki rekinn med tapi til framtíðar.
Höllin er gríðarlega mikilvæg sem æfingasvæði hestafólks , uppeldis tæki ungra tilvonandi hestamanna og annara ungmenna sem njóta þess að umgangast og læra á hest.  Hún er stórkostlegt íþrótta mannvirki allra  hestamanna sem að henni standa.

Því höfum við ákveðið í stjórn Grána ehf að boða til hluthafafundar og lagt fyrir þá tillögu að fá að auka hlutafé í félaginu.
Ef það verður samþykkt af stjórnum beggja félaga, enn þær fara með vald hluthafa þá eru 2 leiðir færar, annars vegar kemur Þjálfi með jafnt hlutafé inn á móti Grana ,heldur eignahlut sínum og bæði félögin leita eftir aðstoð hjá sínum sveitarfélögum og vinna samstiga að bættri rekstrarstöðu, hins vegar  ef Þjálfi vill ekki auka sitt þá breytast lánin frá Grana í aukið hlutafé í Grána ehf og Grani eignast x meirihluta í Grána ehf.
Ef hlutafjáraukning verður ekki samþykkt jafngildir  það pattstöðu sem lamar félagið og mun draga það í hugsanlegt þrot.
Við Granafélagar höfum bæði vilja og getu til að til að stýra rekstrinum í gott horf og vonum að hinir hluthafarnir beri hag reiðhallar og hestamanna fyrir brjósti og forsvarsmenn Norðurþings verði jákvæðir í samstarf ef höllin verður í meirihlutaeigu Grana.
Ég óska eftir velvilja og samstöðu allra hestamanna sem og bæjarstjórnarfólks í þessu máli.

Lilja Hrund Harðardóttir

2015-12-14T20:41:05+00:00 25 október , 2015|Fréttir, Reiðhöll|0 Comments

About the Author: