Kæru Granamenn !

Nú er örstutt í aðalfundinn okkar og kapphlaup hjá stjórn að klára síðustu verkefnin fyrir hann.
Ef þér,félagsmaður góður langar að vinna skemmtileg félagsstörf, annaðhvort í nefndum,stjórn eða sem formaður Grana ,þá verið endilega í sambandi við Lilju formann,
Ykkur að segja þá er komið fram svakalegt framboð til vallarnefndar, sem og stjórnar, það vantar þó enn herslumuninn,og hvetjum við ykkur til að dusta rikið að félagshæfileikum og þörf sem blundar í okkur öllum að gera veg hestaíþróttarinnar okkar sem mestan hér með okkur.
Hlökkum til að sjá þig á fimmtudagskvöldið kl 20:00 í Bústólpahöllinni
Fh stjórnar Lilja Harðardóttir

2016-05-23T22:26:33+00:00 23 maí , 2016|Fréttir|0 Comments

About the Author: