Mótaröð Léttis

Nú hefur Léttir boðið okkur austan Vaðlaheiðar að koma með lið í mótaröð sem byrjar þann 19 febrúar. Auðvitað mætum við gallhörð í það.

Þeir sem hafa áhuga á að vera með í liðinu er bent á að hafa samband við Svanhildi 699-5775 eða Einar Víði 869-3248. Fyrir áramót !

Fyrirkomulagið er svona

  •  5 Lið keppa. (6 lið ef mikil þáttaka er)
  •  Ótakmarkaður fjöldi í hverju liði.
  • 6 í hverju liði keppa hvert sinn.
  • Þrír í 1 flokki og þrír í 2 flokki.
  • Bara A úrslit í hvorum flokki.
  • Liðin ráða hvort börn,unglingar, eða ungmenni skipi liðið ein eða ásamt fullorðnum.
  • Keppt verður á föstudögum.
  • 3 dómarar dæma.
  • Heildarfjöldi keppenda hvert kvöld er enn 30. (36)

Ákveðið er að leggja upp með svipuð lið og í fyrra, Akureyri verður með 2 lið, Hörgársveit 2 lið, Þingeyjarsveit, eitt lið og  Dalvík og Eyjafjarðarsveit með eitt lið saman. Þetta er sett upp að því gefnu að viðkomandi félög hér í kringum okkur vilji vera með. Menn keppa í sama flokki í öllum greinum. Börn og unglingar keppa í 2 flokki. Ungmenni  geta valið hvort þau keppa í 1 eða 2 flokki, fer eftir keppnisreynslu. Ef næst ekki að fylla í lið, þá er möguleiki að fá menn af öðru svæði í liðið.

Keppnisdagar:

19. febrúar KEA-Mótaröð, tölt T2 – Léttishöllin

04. mars KEA-Mótaröð, fjórgangur – Léttishöllin

31. mars KEA-Mótaröð, fimmgangur – Léttishöllin

08. apríl KEA-Mótaröð, tölt og skeið – Léttishöllin

2015-12-14T20:38:08+00:00 14 desember , 2015|Fréttir, Mót og úrslit|0 Comments

About the Author: